recipes:fish:ofnbakadur_thorskur

Ofnbakaður þorskur með pistasíusalsa, sætkartöflumús og sojasmjörsósu

Sætkartöflumús

  • ca 5-600 gr sætar kartöflur, skrældar og skornar í bita
  • 1-2 kartöflur, skrældar og skornar í bita
  • 1/2 rautt chili, fræhreinsað
  • safi úr 1/2 límónu (lime)
  • ca 1 msk smjör
  • salt og pipar

Þorskur með pistasíusalsa

  • ca 600 gr þorskhnakkar eða þorskflök
  • salt og pipar
  • 3-4 msk pistasíuhnetur, saxaðar (má líka nota furuhnetur)
  • 3 msk sítrónusafi og rifið hýði af 1/2 sítrónu
  • 1 msk olífuolía
  • ca 1 dl fersk steinselja, söxuð
  • 1/4 – 1/2 rautt chili, fræhreinsað og fínsaxað

Sojasmjörsósa

  • 3 msk smjör
  • 1 skarlottulaukur (hægt að nota 1/2 rauðlauk), saxaður fínt
  • 1 hvítlauksrif, saxað fínt
  • 1 tsk rautt chili, saxað fínt
  • 2-3 msk sojasósa
  • 1 msk steinselja, söxuð smátt
  • Prep: 15 minutes
  • Cook: 30 minutes
  • Serves: 3

barcode

  1. Ofninn hitaður í 220 gráður.
  2. Kartöflur og sætar kartöflur skrældar og skornar í svipað stóra bita. Þær eru svo settar í pott og vatn rétt látið fljóta yfir. Chili skorið í tvennt langsum, fræin hreinsuð úr og því svo bætt út í pottinn. Til að fá bragðsterkari kartöflumús er hægt að saxa chili smátt. Límónusafa bætt út í pottinn. Suðan látin koma upp og soðið í 15-20 mínútur eða þar til að kartöflurnar eru orðnar mjúkar. Vatninu helt af og chili (ef það er í heilu) fjarlægt. Kartöflurnar stappaðar fínt með smjöri og bragðbættar með salti, pipar og jafnvel meiri límónusafa. Til að skerpa á hitanum á sætkartöflumúsinni er hún sett í pott og hituð upp við meðalhita, hrært í á meðan.
  3. Þorskflökin skorin í bita og þeim raðað í smurt eldfast form. Kryddað með salti og pipar. Því næst er blandað saman í skál: pistsíuhnetum, sítrónusafa, sítrónuhýði, steinselju, chili og ólífuolíu. Blöndunni er dreift yfir fiskinn. Bakað í miðjum ofni við 220 gráður í ca 12-15 mínútur eða þar til fiskurinn er fulleldaður. Gætið þess að ofelda hann ekki.
  4. Smjör brætt í potti og látið krauma við fremur vægan hita í ca 15 mínútur þannig að smjörið verði brúnt. Froðan veidd af smjörinu. Lauk, hvítlauk, sojasósu, chili og steinselju blandað saman í skál og blandað út í smjörið rétt áður en sósan er borin fram. Njótið gjarnan með góðu hvítvínsglasi!

Best er að byrja á kartöflunum, afhýða þær, skera niður og byrja á að sjóða þær. Þegar þær eru komnar í pottinn er fiskurinn útbúinn og gerður tilbúinn fyrir ofninn. Eina sem er viðkvæmt fyrir biðinni er fiskurinn, maður vill bera hann á borð þegar hann er nýkominn úr ofninum. Þess vegna er best að setja hann í ofninn þegar kartöflurnar eru komnar vel á stað og jafnvel sósan líka. Kartöflumúsin er stöppuð, hrærð og bragðbætt í potti og þá þarf að skerpa á henni en það er hægt að gera hvenær sem er þannig að hún þolir vel að bíða.