====== Ofnbakaður þorskur með pistasíusalsa, sætkartöflumús og sojasmjörsósu ====== {{:recipes:fish:thorskur.jpg?600|}} ===== Ingredients ===== **Sætkartöflumús** * ca 5-600 gr sætar kartöflur, skrældar og skornar í bita * 1-2 kartöflur, skrældar og skornar í bita * 1/2 rautt chili, fræhreinsað * safi úr 1/2 límónu (lime) * ca 1 msk smjör * salt og pipar **Þorskur með pistasíusalsa** * ca 600 gr þorskhnakkar eða þorskflök * salt og pipar * 3-4 msk pistasíuhnetur, saxaðar (má líka nota furuhnetur) * 3 msk sítrónusafi og rifið hýði af 1/2 sítrónu * 1 msk olífuolía * ca 1 dl fersk steinselja, söxuð * 1/4 – 1/2 rautt chili, fræhreinsað og fínsaxað **Sojasmjörsósa** * 3 msk smjör * 1 skarlottulaukur (hægt að nota 1/2 rauðlauk), saxaður fínt * 1 hvítlauksrif, saxað fínt * 1 tsk rautt chili, saxað fínt * 2-3 msk sojasósa * 1 msk steinselja, söxuð smátt ===== Info ===== * **Prep:** 15 minutes * **Cook:** 30 minutes * **Serves:** 3 * [[https://eldhussogur.com/2012/09/04/ofnbakadur-thorskur-med-pistasiusalsa-saetkartoflumus-og-sojasmjorsosu/|Source]] ~~BARCODE~class=center~size=S~~ ===== Directions ===== - Ofninn hitaður í 220 gráður. - Kartöflur og sætar kartöflur skrældar og skornar í svipað stóra bita. Þær eru svo settar í pott og vatn rétt látið fljóta yfir. Chili skorið í tvennt langsum, fræin hreinsuð úr og því svo bætt út í pottinn. Til að fá bragðsterkari kartöflumús er hægt að saxa chili smátt. Límónusafa bætt út í pottinn. Suðan látin koma upp og soðið í 15-20 mínútur eða þar til að kartöflurnar eru orðnar mjúkar. Vatninu helt af og chili (ef það er í heilu) fjarlægt. Kartöflurnar stappaðar fínt með smjöri og bragðbættar með salti, pipar og jafnvel meiri límónusafa. Til að skerpa á hitanum á sætkartöflumúsinni er hún sett í pott og hituð upp við meðalhita, hrært í á meðan. - Þorskflökin skorin í bita og þeim raðað í smurt eldfast form. Kryddað með salti og pipar. Því næst er blandað saman í skál: pistsíuhnetum, sítrónusafa, sítrónuhýði, steinselju, chili og ólífuolíu. Blöndunni er dreift yfir fiskinn. Bakað í miðjum ofni við 220 gráður í ca 12-15 mínútur eða þar til fiskurinn er fulleldaður. Gætið þess að ofelda hann ekki. - Smjör brætt í potti og látið krauma við fremur vægan hita í ca 15 mínútur þannig að smjörið verði brúnt. Froðan veidd af smjörinu. Lauk, hvítlauk, sojasósu, chili og steinselju blandað saman í skál og blandað út í smjörið rétt áður en sósan er borin fram. Njótið gjarnan með góðu hvítvínsglasi! ===== Notes ===== Best er að byrja á kartöflunum, afhýða þær, skera niður og byrja á að sjóða þær. Þegar þær eru komnar í pottinn er fiskurinn útbúinn og gerður tilbúinn fyrir ofninn. Eina sem er viðkvæmt fyrir biðinni er fiskurinn, maður vill bera hann á borð þegar hann er nýkominn úr ofninum. Þess vegna er best að setja hann í ofninn þegar kartöflurnar eru komnar vel á stað og jafnvel sósan líka. Kartöflumúsin er stöppuð, hrærð og bragðbætt í potti og þá þarf að skerpa á henni en það er hægt að gera hvenær sem er þannig að hún þolir vel að bíða. {{:recipes:fish:thorskur3.jpg?600|}} {{tag>cod sweet_potato pistachio chili}} ~~NOTOC~~ ~~DISCUSSION|Notes~~